LiTLa LjóT

LiTLa LjóT

08.01.2007 22:09:52 / pirrud

Annállinn...

Jæja ég gaf mér loksins tíma til að taka þetta saman :)

 

 

Janúar; Þrettándinn var tekinn með mikilli gleði hjá Ó&K. Ásdís og Baddi eignuðust strák nr. 2 og var mikil gleði þar á bæ. Anna Sif varð 16 og fékk æfingaakstur ;) Önnur önnin mín hófst í HR og var sko alls ekki leiðilegri en sú fyrsta ;)

Febrúar; Skóli, skóli og meiri skóli. Við keyptum okkur bíl saman, eitt stykki Mözdu3, en við gáfum okkur hann í Valentýnusargjöf, ekki amalegt það ;) Kidda og Ómar eignuðust lítinn sætann strák en á meðan allt var að ske vorum við með Andreu og Viktor hjá okkur í Mávanesinu og skemmtum okkur vel ;) Farið var á Þverá eina helgi og alltaf jafn gaman þar. Tengdapabbi varð 44 ára.

Mars; Litli minn varð 19 ára. Íris og Ingó eignuðust litla prinsessu og auðvitað var hún alveg georgeus eins og foreldrarnir. Við pössuðum Sigga Ring heila helgi og fórum meðal annars á vélsleðamótið á Mývatni.

Apríl; Prófin byrjuðu í HR og gengu þau svona ljómandi vel. Elva Katrín fermdist. Ég fór norður um páskana og hafði það alveg ljómandi gott. Litlu drengirnir voru skírðir og fengu þeir nöfnin Elvar Máni og Almar Logi. Sama dag var einnig litla prinsessa Í&I skírð og fékk hún nafnið Embla Lív. Alveg gullfalleg nöfn : ) Steini minn, mamma, Júlía og fullt af fleiri “krökkum” dimmiteruðu og skemmtu sér frábærlega. Áfáar ferðirnar voru farnar á Þverá.

Maí; Þá var skellt sér suður aftur og farið í verkefni í skólanum. Því var svo skilað í lok maí og má segja að maður hafi lært alveg helling á því. Svo var haldið norður aftur og farið að vinna í Byko. Bragi bróðir varð 12 ára og Berta varð 17 og fékk bílprófið ;)

Júní; Já þó svo að þið eigið erfitt með að trúa því að þá snjóaði allt á kaf fyrir norðan og að sjálfsögðu mættum við á Þverá og fórum á sleða og þess háttar, ekkert smá gaman. Elva Katrín varð 14 ára. Svo var bara vinna á fullu og alveg nóg að gera enda ný búð að opna á Akey. Reunion var frá Síðuskóla og var alveg æðislegt að fá að hitta gömlu skólafélagana aftur og skemmtum við okkur konunglega. Vinnudjamm, djamm með Írisi lover og fleirum snillingum standa uppúr eftir þennan mánuðinn. ;) Í lok mánaðarins fórum við á ættarmót á Sigló og kom það í ljós að Siggi hennar Írisar er bara skyldur mér svo að við skemmtum okkur ágætlega.

Júlí; Unnið eins og geðsjúklingur og skemmt sér vel inná milli. Fórum í geggjaða útilegu með öllum bestu vinum okkar.

Ágúst; Fiskidagurinn mikli á Dallaz er alltaf jafn skemmtilegur. Fengum loksins úthlutaða íbúð og var allt sett á fullt að græja fyrir flutninginn. Fluttum svo suður um miðjan mánuðinn og komum okkur vel fyrir hérna í Kristnibrautinni með hjálpa Ó&K. Alltaf eru þau jafn yndisleg. Annað árið mitt hófst í HR. Tengdamamma varð 41 árs og Siggi Ring varð 2ja ára.

Sept; Ég varð 21 og hélt smá afmælisveislu að því tilefni og litu nokkrir góðir við. M&P buðu okkur í brunch á Nordica og var það alveg geggjað gott.

Okt; Skóli og meiri skóli. Frekar leiðileg önn en maður harkaði það af sér. Fórum norður eina helgi og Steini minn fór í aðgerð. Pabbi átti afmæli og varð 35 ára, ungur karlinn;)

Nóv; Steini minn var ca. hálfan mánuðinn heima eitthvað hálf slappur og ég var bara að meika það í skólanum. Fór á Vetrarhátíðina sem sumir beiluðu á. Auðbjörg átti afmæli og varð hún 16 ára.

Des; Prófin byrjuðu í HR og þar með var BS námið mitt hálfnað ;) Við fórum norður og mamma og Júlía útskrifuðust úr VMA, duglegar gellurnar. Mamma átti afmæli annan í jólum og varð hún 39 ára (eða kannski bara 25, svo ungleg er hún). 

 

Vonandi að þetta hafi verið skemmtilegur lestur... ég er svo sem örugglega að gleyma einhverju :)




» 12 hafa sagt sína skoðun

07.01.2007 01:16:10 / pirrud

Jólin kvödd...

Já ég get ekki annað sagt en árið 2006 hafi verið yndislegt í alla staði, ég kem með stuttan annál eftir helgi ;)

Hafið það gott þar til næst ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.12.2006 15:49:15 / pirrud

Aðfangadagur

 

 

Gleðilega hátíð og farsæld á komandi ári!!

Hafið það sem allra best um hátíðirnar og vonandi að við sjáum sem flesta :)

Jólakveðjur frá
Írenu & Steina


» 3 hafa sagt sína skoðun

13.12.2006 10:17:02 / pirrud

Miðvikudagur....

Langaði bara að segja ykkur það að ég er búin í prófunum!!! ;) jeiii en það þýðir að ég er hálfnuð með háskólann sem er ekkert smá skrýtið... úff maður þarf bara að fara að spá í því hvað á að gera eftir skólann ;)

Ég er ekki búin að fá neinar einkunnir en þær fara vonandi að koma, vonandi bara að maður hafi náð öllu :)

Á næstu önn ætla ég svo í eitt auka fag og tek ég það með kvöldskólanum en það verður bara gaman að prufa það :)

En vildi bara láta vita af mér, jólakortin bíða hérna óskrifuð svo að best að vinda sér í það :)

Þar til næst, hafið það gott :)

P.s munið að kvitta ;)


» 14 hafa sagt sína skoðun

04.12.2006 16:32:55 / pirrud

Mánudagur...

... og ég get ekki neitað því að ég er að farast úr stressi!! :S

Ég er búin með 2 próf af fimm svo að þetta er alveg að hafast :) Fer reyndar í próf á morgun sem ég kvíði alveg hryllilega fyrir og svo er næsta próf tölfræði og hún er á föstudaginn svo að það er eins gott að ég verði dugleg að reikna eftir prófið á morgun:)

Við erum svona að detta í jólagírinn, erum búin að setja upp smá jólakraut hérna heima hjá okkur og kaupa að mig minnir 2 jólagjafir ... hehe alltaf hóta ég því á hverju ári að vera búin með þetta allt saman fyrir prófin en aldrei gefst mér tími til þess því það er alltaf nóg að gera hjá manni í þessum blessaða skóla :)

Annars er bara mjög gott að frétta af okkur, ekki nema 8 dagar þar til ég fer í jólafrí og við komum svo noður 16/17 des og hlakka ég ekkert smá til :)

Hafið það gott þar til næst :)


» 3 hafa sagt sína skoðun

21.11.2006 17:54:29 / pirrud

Þriðjudagur...

og það er vika í fyrsta prófið mitt og nóg að gera þangað til. Á föstudaginn á ég að skila ekki nema 3 verkefnum svo að ég hef haft nóg að gera :)

Um helgina kom tengdapabbi og konan hans svo að við eyddum smá tíma um helgina í verslunum og alls konar þeytingi með þeim sem var bara gaman :)

Annars er mjög lítið að frétta af okkur, það bara snjóði heilan helling hérna á laugardagsnóttina og á sunnudaginn svo að ég held að þessi snjór nái eitthvað að halda sér :) veitir ekkert af honum til að lýsa upp skammdegið :)

Framundan er bara endalaus próflestur...eða til 12 des, vonandi bara að mér gangi vel að læra og ég geti haldið mér við bækurnar ekki eitthvað annað. Það virðist alltaf vera hægt að finna sér eitthvað allt annað að gera en að læra þegar maður virkilega á að vera að því ;) hehe alveg ótrúlegt

En hafið það gott og þið sem eruð að byrja í prófunum....gangi ykkur alveg ótrúlega vel!!!

Knúsar og kossar


» 8 hafa sagt sína skoðun

08.11.2006 09:41:39 / pirrud

Miðvikudagur....

Jæja, kominn 8 nóvember!! Þetta er alltof fljótt að líða.... önnin í skólanum að verða búin sem að þýðir að prófin eru á næsta leiti :S

Ég er búin að vera löt að blogga þar sem ég er búin að vera á hvolfi í verkefnavinnu og núna eru ekki nema 5 verkefni eftir svo að þetta er alveg að hafast :)

Á föstudaginn átti Júlía mín afmæli og vil ég aftur óska henni til hamingju með það ;)
Á laugardaginn var svo Vetrarhátíð og skellti ég mér með stelpunum og það var ekkert smá gaman. Byrjaði á því að fara greiðslu þar sem hún Kidda var svo yndisleg að greiða mér og var það ekkert smá flott :) Svo var haldið til Hildar Jónu í smá "fyrirteiti" og svo var brunað á Grand Hótel þar sem hátíðin var haldin. Þetta gekk allt framar vonum og var aldeilis dansað þarna og svo var haldið í bæinn. Fórum á Ólíver, VM og Thorvaldssen og ég hitti Thelmu röltandi á Laugaveginum. Svo hitti ég Steina minn og frænda hans sem svo skuttlaði okkur heim eftir alveg magnað kvöld:)

Sunnudagurinn fór svo að mestu í lærdóm, eins og mánudagurinn og þriðjudagurinn.... úff og sennilega dagurinn í dag þar sem það er nóg að gera....

Á föstudaginn er svo Júlía að koma í bæinn og verður geggjað gaman að hitta hana enda er ég alveg farin að sakna hennar, en við vonanadi getum brasað eitthvað saman um helgina :)

En ég get sagt ykkur eitt, það er svona cm hár snjór hérna... hehe en reyndar er spáin fyrir helgina 2ja stiga hitatala svo að ég er löngu hætt að skilja þetta veður, en svona er þetta :)

Hafið það sem best....


» 6 hafa sagt sína skoðun

27.10.2006 13:19:46 / pirrud

Föstudagurinn 27.október....

... í dag hefði Þórður frændi orðið 20 ára.

Elsku karlinn minn...innilega til hamingju með daginn :) Ég veit að þú ert að fylgjast með okkur þarna uppi svo að ég veit að þú sérð mig skrifa þetta til þín.
Ég elska þig alltaf jafn mikið "litli" stóri frændi ;)

Ég vona að þú hafir það rosalega gott í dag og ég hlakka til að hitta fjölskylduna í kvöld og vonandi að einhverjir vinir þínir sjái sér fært um að mæta og vera með okkur :)

Ég sakna þess að geta ekki heyrt í þér og knúsað þig því það var alltaf svo gott að koma til ykkur gömlu því maður var alltaf svo velkominn og manni leið svo vel þegar maður fór frá ykkur. Mér þykir alveg óendanlega vænt um þig og alla fjölskylduna okkar.... hafðu það gott karlinn og vonandi að þú verðir með okkur í kvöld.

Knúsar og kossar


» 4 hafa sagt sína skoðun

24.10.2006 13:27:44 / pirrud

Þriðjudagur...

...og ég held að ég sé með athyglisbrest!! Allavegana er mér ekkert að ganga að fyljgast með í skólanum í dag... reyndar eru ekkert uppörvandi tímar í gangi, sit núna í Alþjóðaviðskiptum svo að þið getið alveg ímyndað ykkur hversu mikil skemmtun það er :)

Ég var að lesa mér til um athyglisbrest á netinu og varð að leyfa þessu að fylgja með :)

Hver eru sjúkdómseinkennin?
Þeir sem greindir eru með ofvirkni og athyglisbrest eiga fyrst og fremst í erfiðleikum með að halda athygli sinni vakandi, einbeita sér og eru félagslega heftir. Þeir eru ofvirkir, auðvelt er að trufla þá og þeir eiga að einhverju leyti í vandræðum með hreyfingar sínar. Þeir eru órólegir, framkvæma hugsunarlaust og eru oft pirraðir. Margir eiga erfitt uppdráttar félagslega og skilja illa samhengi milli orsaka og afleiðinga. Sumir fá ósjálfráða kippi í andlit og háls og þráhyggjueinkenni. Í einstökum tilvikum fá þeir sem haldnir eru ofvirkni og athyglisbresti líka flogaveiki og verða einhverfir.
 

Önnur einkenni hjá börnum sem haldin eru ofvirkni og athyglisbresti:
 

  • óróleiki, eirðarleysi
  • geta illa slakað á
  • skortur á sjálfsstjórn
  • taltruflanir
  • námsörðugleikar
  • láta stjórnast af skyndihugdettum
  • eru oft pirruð
  • hafa lítið þol
  • eiga erfitt með að lifa sig inn í aðstæður
  • eiga bágt með að setja sig í spor annarra

Alveg spurning hvort að maður ætti að láta tékka á sér ;) hehehe smá grín... en alltaf gaman að fræðast :)


» 3 hafa sagt sína skoðun

18.10.2006 08:57:20 / pirrud

Miðvikudagur...

Jæja.... þá erum við komin í borgina aftur :)

Höfðum það alveg rosalega gott fyrir norðan um helgina miðað við aðstæður, Steini minn var nottla í þessari aðgerð en er allur að koma til :)

Helgin fór í það að læra fyrir stærðfræðiprófið sem var á mánudaginn og hjúkra mínum manni ;)

Ég svo sem veit ekkert hvað ég á að segja ykkur.. en hvað er málið með kuldann úti ?? :8| Skil þetta ekki.....

Vonandi að þið hafið átt góða helgi...


» 2 hafa sagt sína skoðun

10.10.2006 11:24:47 / pirrud

Þriðjudagur...

Jæja þá erum við komin heim frá Egilsstöðum :) Rúntuðum á Reyðarfjörð og Fáskrúðsfjörð og sáum meðal annars risa hóp á hreindýrum, ekkert smá falleg :)

Á sunnudaginn keyrðum við til Akureyrar og fórum í kaffi til M&P og brunuðum svo suður....alltaf gott að koma heim.

Í gær var bara tekið til á heimilinu og allt sjænað og svo fórum við til Ó&K í mat og Steini var eitthvað að brasa með Ómari.

Í dag er það bara skóli og lærdómur því það er próf í stærðfræði á mánudaginn og er alveg spurning hvort að ég taki það ekki bara á Akureyri ef að Steini verður alveg off eftir aðgerð sem hann er að fara í á FSA á föstudaginn :S En ég vona það besta :)

Á fimmtudaginn er stefnan að kíkja í nýja IKEA og bruna svo snemma norður til að vera ekki alltaf seint á ferð :) heh

En ég hef svo sem ekkert að segja .... hafið það gott :)


» 4 hafa sagt sína skoðun

06.10.2006 09:12:51 / pirrud

Föstudagur...

Já ég get sagt ykkur það, ég er að fara á Egilsstaði í dag og við förum keyrandi þar sem við þurfum að koma við á Akureyri og sækja systur Steina, en þetta verður bara stuð :)

Í vikunni er alveg búið að vera nóg að gera hjá okkur, ég fór í tvö próf á miðvikudaginn og vonandi að það hafi gengið ágætlega :)
Steini er búinn að vera að vinna og vinna eins og vanalega og gengur bara mjög vel hjá honum að læra þetta allt saman :)

Erum búin að fara í mat til Ó&K 2svar ;) hehe

Ég hef svo sem ekki mikið að segja ykkur, komum reyndar á Akureyri á fimmtudaginn í næstu viku og verðum yfir helgina svo að það er nóg að gera hjá okkur, alltaf á flakki ;)

Hafið það gott


» 2 hafa sagt sína skoðun

27.09.2006 10:30:11 / pirrud

Óhugnanlegt....

Úff ég sá þetta á heimasíðunni hjá frænda mínum á ákvað að deila þessu með ykkur. Þetta er ekkert smá krípý! :S

 

 

 

 

Ljótur veruleiki Í vímu,

Í skít og reyk

áttu þau lítinn ástarleik

en þau gleymdu góðum sið

og líf kviknaði í móðurkvið.

Allt sem hún átti í mánuði níu

var hass og pípa með skítuga síu.

Hún var marin og með bláa bauga

verðandi móðir með glóðurauga.

Loks fæddist lítill drengur

gullmoli var hann og lífsins fengur.

En lítill friður var með þessum sálum

því ekkert breyttist í hennar málum.

Hún leit ekki á lífið sem mömmuleik

hún þurfti meira - bæði vín og reyk.

Og þrátt fyrir ásakanir og skammir

voru vatnssoparnir ætíð rammir.

Og þegar hana fór að langa

gleymdi hún munninum svanga.

Hún læddist á hverju kvöldi út

og hunsaði alla ábyrgð á litla kút.

Það var köld og dimm vetrarnótt

hann var svangur og með hitasótt.

Einn í félagslegu steyptu skjóli

grét hann eða svaf í mömmubóli.

Svo kom hún heim í morgunsárið

og sá hvar glitraði á barnstárið,

sem staðnað hafði á kaldri kinn

- hún faðmaði aldrei framar drenginn sinn.

Líf barnsins lagði hún að veði

fyrir skammvinna, ómerkilega gleði

fallegu augun mun hún aldrei aftur sjá

sem hún elskaði heitar en hægt er að tjá.

Alla daga eftir stóð hún stjörf og stíf

það hafði verið tekið frá henni allt líf.

Hún var full af sorginni dimmleitri,

því hún kæfði barnið sitt með eitri.

Tvö líf fórust þessa nótt

því afskaplega kyrrt og hljótt

en þó féllu þau með ólíkum hætti

féllu þau fyrir fíknarmætti.


» 7 hafa sagt sína skoðun

26.09.2006 12:38:35 / pirrud

Þriðjudagur...

Góðan daginn gott fólk:)

Síðasta vika var heldur betur fljót að líða og var ýmislegt brasað, fór meðal annars í IKEA og keypti mér kommóðu, fór í matarboð og ýmislegt fleira :)

Á föstudaginn fór ég í fótsnyrtingu sem var bara næs, svo um kvöldið buðum við M&P í mat því þau voru að þvælast í borginni þar sem þau voru að fara á tónleikana með BÓ á laugardagskvöldið. Eftir að þau fóru tók við ægilegur bakstur fyrir laugardaginn ;)

Á laugardaginn var svo kökuboð heima hjá okkur og komu alveg hellingur af frábæru fólki, takk æðislega vel fyrir mig allir!! Eftir boðið fórum við Steini svo á Nings og fengum okkur smá að borða og svo var skellt sér í Rebba með Ó&K og sátum við þar fram að miðnætti :)

Á sunnudaginn var svo ræs frekar snemma og skellt sér í Brunch á Hótel Nordica í tilefni dagsins og get ég ekki annað sagt en að það hafi verið alveg geggjað:) Eftir matinn fórum við að þvælast í Kringluna og kíktum í Perluna og fengum okkur ís.
Um kvölið forum við svo í mat í Mávanesið og vorum bara komin snemma heima því ég þurfti að fara að læra, ekkert skemmtilegt en svona er þetta blessaða háskólalíf J
Ég vil þakka öllum fyrir kveðjurnar á sunnudaginn, þótti rosalega vænt um þær ;)

Í gær var svo bara verið í skólanum og eftir skóla tók ég smá rúnt í Kringuna og keypti skó handa elskunni og fór svo bara heim að læra því ekki veitir af því núna….miðannarprófin byrja í næstu viku og er komið nett stress í mann fyrir þau :S
Vona bara að þau gangi sem best ;)

Annars er svo sem ekkert fleira að frétta, erum að fara í matarboð í kvöld til Ó&K og ætlum að reyna að vera farin snemma í háttinn enda smá þreyta að gera vart við sig þessa dagana J

En hafið það gott…..

 

 




» 0 hafa sagt sína skoðun

18.09.2006 10:19:12 / pirrud

Mánudagur...

... og alltaf nóg að gera :)

Vorum á Ak-city um helgina og var það svaka gaman :) Fórum á fimmtudaginn og vorum aðallega að hjálpa tengdó að flytja og svo kíkti ég út með Thelmu, Halldóru og Stellu og hitti margt skemmtilegt fólk ;) Vorum aðallega á Kaffinu og var svaka stuð :)

Stefnan fyrir vikuna er að vera mega dugleg að læra svo ég hafi frí næstu helgi því þá á maður víst afmæli ;) hehe

Annars hef ég ekkert merkilegt að segja frá, hafið það bara sem best :)


» 12 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 12
Fyrir okkur nördin:)
Síðuskóli 2001